Einkaklúbburinn - Þú færð afsláttinn strax!
Einkaklúbburinn er einn öflugasti afsláttar- og fríðindaklúbbur á Íslandi og var stofnaður árið 1992. Skírteini klúbbsins veitir afslátt hjá mörg hundruð fyrirtækjum um allt land.
Einkaklúbbskortið
Á kortið skráir korthafinn nafnið sitt og kortið gildir út þann mánuð sem stimplaður er framan á það.
Árbók Einkaklúbbsins
Í árbókinni finnur þú upplýsingar um öll fyrirtæki sem veita Einkaklúbbsfélögum sérkjör. Bókin skiptist í fjóra hluta: Vetingavísir Einkaklúbbsins inniheldur upplýsingar um veitingahús, skemmtistaði og bari á öllu landinu. Verslun og þjónusta er annar hlutinn og inniheldur upplýsingar um alla aðra samstarfsaðila klúbbsins á höfuðborgarsvæðinu.
Landsbyggðin er þriðji hlutinn og þar finnur þú öll fyrirtæki á landsbyggðinni, raðað eftir stöðum, réttsælis í kringum landið.
Sértilboðamiðar eru fremst í Árbókinni. Þar eru frábær tilboð sem korthafar fá með því að framvísa miðanum og Einkaklúbbskortinu.
Þjónusta við korthafa
Gula línan veitir allar upplýsingar um tilboð Einkaklúbbsins og tekur við pöntunum og endurnýjunum. Síminn er 1444.
Fyrirtæki í hverjum hluta eru flokkuð eftir landshlutum og þjónustuflokki og raðað í stafrófsröð innan þjónustuflokka. Milli ára taka samningar oft breytingum. Kynnið ykkur því alla samninga. Sum fyrirtæki hafa bætt samningana.
Notkunarreglur
1. Kortið gildir fyrir korthafa einan (þó einnig fyrir einn gest á veitingahúsum).
2. Ávallt skal sýna kortið áður en viðskipti fara fram. Það er nauðsynlegt að sýna kortið áður en pantað er. Reikningar eru oft slegnir inn jafnóðum á veitingahúsum og erfitt er að breyta þeim eftir á. Einnig kemur þá strax í ljós er t.d. eigendaskipti hafa orðið.
3. Uppgefinn áfsláttur miðast við fullt verð. Enginn afsláttur er veittur af sértilboðs- eða útsöluverði. Sé annað ekki tekið fram er afsláttur sá sami, hvort sem greitt er með peningum eða korti.
4. Ekki er afsláttur af drykkjum, hádegistilboðum, tilboðsmatseðlum, veislumatseðlum, hlaðborðum eða öðrum sértilboðum á veitingahúsum, nema þess sé sérstaklega getið. Aðeins af föstum matseðli hússins.
5. "Tveir fyrir einn" tilboð gilda ekki fyrir fleiri en korthafa og gest hans (ekki t.d. "fjórir fyrir tvo").
6. Ókeypis aðgangur að skemmtistöðum gildir ekki séu þeir leigðir út, t.d. fyrir skólaböll.