Tilboð af gistingu
Gisting á Radisson BLU, Hótel Sögu
Gisting ásamt morgunverði. Innifalið í verði er aðgangur að heilsulindinni Mecca Spa, ásamt nettengingu.
Tveggja manna herbergi kr. 14.000 ásamt morgunverði í eina nótt.
Eins manns herbergi kr. 12.000 ásamt morgunverði í eina nótt.
Ofangreind verð gilda til 30.04.2012.
Hvernig væri að spara sér leigubílinn, sofna í góðu rúmi og snæða frábæran morgunverð áður en haldið er heim eftir góða skemmtun?
Ef það er eitthvað sem hljómar vel vinsamlegast hafið samband við söludeild okkar og bókið ofangreint tilboð í síma 525-9920 eða sendið tölvupóst á: Reservations.Saga.Reykjavik@Radissonblu.com.
Gisting á Park Inn Íslandi
Gisting á Park Inn Íslandi er einstaklega hagkvæm og tilvalin fyrir jafnt hópa sem einstaklinga. Á herbergjum er sjónvarp og kæliskápur. Fjölbreytt morgunverðarhlaðborð er innifalið í herbergjaverði.
Skemmtistaðurinn Broadway er staðsettur í kjallara hótelsins og því er kjörið að gista á Park Inn í tengslum við árshátíðir, jólahlaðborð eða aðrar skemmtanir.
Venjulegt eins manns herbergi með morgunverði kostar 10.000 kr. nóttin.
Venjulegt tveggja manna herbergi með morgunverði kostar 12.000 kr. nóttin.
Bjóðum einnig upp á rúmgóðar svítur á góðum kjörum.
Ofangreind verð gilda til 30.04.2012.
Þú færð allar nánari upplýsingar um Park Inn Ísland á www.parkinn.com/reykjavik. Söludeild hótelsins tekur á móti bókunum í síma 525 9920 milli 8 og 17 alla virka daga.